Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Rósa Magnúsdóttir

Haustið 1986 funduðu Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, um afvopnunarmál í Höfða.

Kaldastríðsborg varpar ljósi á Reykjavík á tímum kalda stríðsins og hvernig alþjóðleg átök stórveldanna höfðu áhrif á borgarlíf og íslenskt samfélag. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar og fram að hruni Sovétríkjanna árið 1991 var Ísland hluti af átakasvæði þar sem hugmyndir, menning og lífsstíll urðu einnig að vígvelli. Hið svokallaða kalda menningarstríð birtist með margvíslegum hætti, allt frá listum og skák til afþreyingar, viðskipta og daglegs lífs.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun